Fleiri hugsjónamenn á þing

Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í kraganum tekur þátt ungur sálfræðinemi, Sævar Már Gústavsson, sem vakið hefur athygli fyrir skelegga framkomu á kynningarfundum í kjördæminu. Hann birti á netinu ræðuna sem hann hefur flutt á þessum fundum og er það vel þess virði að endurbirta hér hluta hennar. Það er einmitt róttæk nálgun Sævars sem þörf er á í íslensk stjórnmál í dag. Í þessu prófkjöri eru margir góðir valkostir til endurnýjunar s.s. Bryndís Loftsdóttir, Elín Hirst, Gunnlaugur Snær og Óli Björn, svo nokkur séu nefnd, en full ástæða til að láta ferskan fulltrúa yngri kynslóðarinnar fylgja með.
 
En meðal þess sem Sævar segir í ræðu sinni: 
 
„Allir samaldrar mínir sem ég hef rætt stjórnmál við, eru sammála um að Ísland er á kolrangri leið. Þeim kvíðir skuldabagganum sem við fáum í arf, þeirri skattbyrði sem mun þrengja að okkur og því ófrelsi sem virðist aukast frá degi til dags. Ef við viljum ferðast til útlanda og geta keypt okkur smáræði þá er okkur skammtaður gjaldeyrir og auk þess er fylgst með eyðslu okkar á meðan dvöl okkar erlendis stendur. Aldrei nokkurn tímann hefur skömmtun og eftirlit ríkisins þótt heillandi meðal ungs fólks eða annara aldurshópa. Undir stjórn vinstri flokkanna hefur óttinn um „Stóra Bróður“ orðið að veruleika – og svo dirfast sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins til þess að styðja forvirkar rannsóknarheimildir sem eru í hrópandi ósamræmi við frjálst samfélag. Forgangsröðun íslenska ríkisins er kolröng, og það hefur komið okkur í þær ógöngur sem við stöndum nú í.
 
Mér gremst að á meðan hjartaþræðingatæki bila í miðri skurðaðgerð þá dirfist fólk til þess að verja ríkisrekstur Hörpunnar, listamannalaun, rándýrar ESB viðræður og ríkisstyrki til stjórnmálaflokka – þessi forgangsröðun er siðferðislega röng og hættuleg af margvíslegum ástæðum. Það þarf að efla heilbrigðiskerfið til muna og það er best gert með frekari aðkomu einkaaðila til þess að þjónusta landsmenn. En miðstýrt heilbrigiðskerfi mun alltaf vera óhagkvæmt og lakara en það gæti orðið vegna íhaldssemi stjórnkerfisins gagnvart nýrri þekkingu og kröfu neytenda. Enginn vill þurfa lifa við eingöngu ríkisrekið heilbrigðiskerfi þar sem tækin eru límd saman og mannekla er í hverju rými.
 
Íslenska menntakerfið er einnig úrelt. Allt er þetta miðstýringu innan menntakerfisins að þakka. Ég legg til að aðalnámskrá verði afnumin fyrir öll skólastig, það á einnig við um Námsgagnastofnun. Nemendur, foreldrar, skólastjórnendur og kennarar eru best til þess fallnir að ákveða hvernig kennslu sé háttað við hvern skóla fyrir sig og hvaða bækur skuli vera kenndar, ekki einn almáttugur menntamálaráðherra. Með því að auka fjölbreytni og samkeppni milli skóla fæst betri menntun sem skilar betur menntuðum einstaklingum út í atvinnulífið.
 
Ef Íslendingar eiga einhvern tímann að vinna sig út úr þeim efnahagsaðstæðum sem við lifum við, þá er mikilvægt að einstaklingum séu gefnar frjálsar hendur til þess að skapa verðmæti. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að ríkið er ekki vel til þess fallið að koma á fót sterku efnahagskerfi því hagsmunaárekstar stjórnmálamanna munu alltaf koma í veg fyrir skilvirkt efnahagslíf. Þess vegna þarf að leggja niður og lækka ótal skatta, gjöld og óþarfa reglur sem hamla vexti hagkerfisins. Auk lækkun skatta þá þarf að ráðast í umfangsmikinn niðurskurð og tala ég fyrir fjárlagatillögum SUS sem eru róttækar og raunhæfar."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband